This store requires javascript to be enabled for some features to work correctly.

Skilmálar


Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vöru, nauðsynlegt er að varan sé í upprunalegum og óskemmdum umbúðum og ástandi auk þess sem að allir fylgihlutir hennar fylgi.  Starfsmenn TheRubz.is meta ástand vöru og hvort hún sé endursöluhæf. TheRubz.is áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða endurgreiða vöru með afskriftum. Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Nauðsynlegt er að framvísa reikningi fyrir kaupum.

Afgreiðsla pantana
Pantanir eru teknar til og afgreiddar eins fljótt og verða má. Vörur eru sendar endurgjaldslaust um allt land með Póstinum og fara á næsta pósthús.

Vörur má einnig sækja í Kósk ehf í Skipholti 5, 105 Reykjavík.

Verð
Verð í netverslun eru með virðisaukaskatti og geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur
Hægt er að greiða með debit- og kreditkortum í gegnum greiðsluþjónustu Valitor, sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðla. Greiðslur eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi Valitor. Einnig bjóðum við upp á greiðslu með Netgíró og með millifærslu.

Ábyrgðarskilmálar
Ábyrgð seljanda er í samræmi við lög þar að lútandi. Ábyrgð á vörum sem seldar eru til einstaklinga er 2 ár en vörur sem seldar eru til lögaðila 1 ár. Nauðsynlegt er að framvísa gögnum fyrir vörukaupum til að sannreyna ábyrgð á vöru. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru.  bera ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða við flutning vöru hjá þriðja aðila.

Öryggi
TheRubz.is varðveitir ekki kreditkortanúmer sem gefin eru upp við kaup í netverslun.

Persónuvernd
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. TheRubz.is deilir ekki persónugreinanlegum gögnum til þriðja aðila.

Vefurinn okkar notast við Google Analytics og safnar það tól ópersónugreinanlegum gögnum s.s. hvaðan heimsóknin kemur, hversu lengi vefurinn var skoðaður og hvaða efni er mest skoðað. Þessi gögn eru nýtt til að greina heimsóknir á vefinn og gera upplifun notenda af honum enn betri. 

Kvartanir
Sé vara gölluð eða viðskiptavinur einhverra hluta vegna ekki ánægður með vöruna er hann hvattur til að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 511-8800

Annað
TheRubz.is áskilur sér rétt til að fella niður pöntun ef nauðsynlegt reynist undir einhverjum kringumstæðum, það gæti m.a. gerst vegna ranga verðupplýsinga í netverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá TheRubz.is eða birgja. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og hægt er.